Google Authenticator eykur öryggi netreikninganna þinna með því að bæta öðru þrepi við staðfestingu þegar þú skráir þig inn. Þetta þýðir að til viðbótar við aðgangsorðið þitt þarftu að slá inn kóða sem Google Authenticator-forritið býr til í símanum. Google Authenticator-forritið getur búið til staðfestingarkóða í símanum jafnvel þótt þú sért ekki með nettengingu eða tengingu um farsímakerfi.
* Samstilltu Authenticator-kóðana við Google-reikninginn þinn og tækin þín. Þannig geturðu nálgast þá hvenær sem er, jafnvel þótt þú týnir símanum.
* Settu Authenticator-reikningana þína upp sjálfkrafa með QR-kóða. Þetta er fljótlegt og einfalt og auðveldar þér að tryggja að kóðarnir þínir séu settir rétt upp.
* Stuðningur við marga reikninga. Þú getur notað Authenticator-forritið til að stjórna mörgum reikningum svo þú þurfir ekki að skipta á milli forrita í hvert skipti sem þú þarft að skrá þig inn.
* Stuðningur við kóðamyndun út frá tíma og talningu. Þú getur valið þá kóðamyndun sem hentar þínum þörfum.
* Flyttu reikninga á milli tækja með QR-kóða. Þetta er hentug leið til að flytja reikningana þína yfir í nýtt tæki.
* Þú þarft að kveikja á tvíþættri staðfestingu á Google-reikningnum þínum til að geta notað Google Authenticator með Google. Farðu á http://kvmujdtn6bveqfy9jgt.campbell-road.com/2step til að hefjast handa Tilkynning um heimild: Myndavél: heimildar krafist til að bæta við reikningum með QR-kóðum
Virkjaðu tvíþætta staðfestingu til að verjast innbrotum á reikninginn þinn.